JÆKSS... hver vill eiga afmæli 20.desember?

IMG_1252

Já hver vill eiga afmæli 20.desember?

Hef sett á laggirnar afmælisskiptavef á www.birthdaychanger.com.mk og er að leita að einhverjum sem á afmæli í júlí eða ágúst sem væri til í að skipta við mig um afmælisdag, frábært fyrir konu fædda 1967 með möguleika á að verða fertug 4. mánuðum seinna en lög gera ráð fyrir !!

 

Ég er fædd 20.desember 1967 og verð sumsé fertug  þá ,en finnst alveg drepleiðinlegt að halda uppá afmæli í snjó og kulda svo ég ákvað að halda uppá afmælið mitt í ár þann 25.ágúst og það heppnaðist svona líka helv.... vel, þannig að hér eftir mun ég halda garðpartý í ágúst og sleppa desemberruglinu!

 

endilega notið vefinn fína og fáið ykkur afmælisdag í uppáhaldsárstíðinni ykkar !

 

knús Helena. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband