10.9.2007 | 14:12
JÆKSS... hver vill eiga afmæli 20.desember?
Já hver vill eiga afmæli 20.desember?
Hef sett á laggirnar afmælisskiptavef á www.birthdaychanger.com.mk og er að leita að einhverjum sem á afmæli í júlí eða ágúst sem væri til í að skipta við mig um afmælisdag, frábært fyrir konu fædda 1967 með möguleika á að verða fertug 4. mánuðum seinna en lög gera ráð fyrir !!
Ég er fædd 20.desember 1967 og verð sumsé fertug þá ,en finnst alveg drepleiðinlegt að halda uppá afmæli í snjó og kulda svo ég ákvað að halda uppá afmælið mitt í ár þann 25.ágúst og það heppnaðist svona líka helv.... vel, þannig að hér eftir mun ég halda garðpartý í ágúst og sleppa desemberruglinu!
endilega notið vefinn fína og fáið ykkur afmælisdag í uppáhaldsárstíðinni ykkar !
knús Helena.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.